
Innréttingar
Vörur

Vinsælustu Vörurnar
Hér má sjá brot af vinsælustu innréttingunum sem við höfum verið að afhenda síðastliðið ár. Við vinnum náið með Teemore Engineering, Írskt verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun og samsetningu á hágæða innréttingum frá mörgum framleiðendum um allan heim. Ef þig vantar innréttingar í hæðsta gæðaflokki þá verslar þú við Teemore

Bása og Gólfmottur
Bása og Gólfmotturnar í fjósin koma frá stórframleiðandanum Bioret-Agri Staðsett í frakklandi með sérstöðu á hve vel motturnar fara með kýrnar en stjarna sýningarinnar er Aquastar básamotturnar sem eru margverðlaunaðar út um alla evrópu. Magellan 16 motturnar í gólfin á fjósunum sem ekki eru með flórbita er leikbreytir í velferð gripa. Hagkvæmar mottur sem bæta grip og velferð á sama bretti, ýta undir slit á klaufum líka.

Innréttingar Kálfar og uppeldi
Uppeldið er verðmætasti hluti búsins. Vel upp komnir kálfar skila sér margfallt til baka í arðsemi til bóndans. Þá er eins gott að vera með allann rétta búnaðinn í það! Heppilegt að hann fæst allur hjá okkur. Innréttingar fyrir kálfa í sérflokki þegar kemur að endingu og vinnuhagræðingu.

Allt fyrir fjósið
Heildarlausnir í fjós. Hvort sem það er nýbygging eða verið að uppfæra núverandi byggingu. Byrjum á að hanna inn innréttingar eftir teikningum. Á nýbyggingum horfum við á flæði, velferð og hvernig við hámörkum afköst gripa. Í eldri byggingum reynum við að koma því þannig fyrir að öllum núverandi stöðlum varðandi velferð sé fylgt og að flæði innanhúss sé hámarkað

Allt fyrir Nautahúsið
Við bjóðum upp á heildstæða lausn í Nautahús. Byrjum á hönnun þar sem tekið er sérlegt tillit til flæðis, velferðar og hagkvæmni. Leggjum mikið upp úr að innréttingarnar sem valdar eru henti og séu sterkar og þoli virkilegt álag sem myndast við það að geyma graðneyti í stíum.