
Mykjulón & Tankar
Vörur

Vatnstankar
Lausnir frá DL Plastics ná yfir vatnstanka, síló, dúka (liners) og yfirbreiðslur sem eru hannaðar fyrir krefjandi notkun í fiskeldi, landbúnaði og iðnaði. Dúkurinn (liner) er lykilhluti kerfisins og er lagður inn í tanka, oft úr bárujárni, til að gera þá fullkomlega vatnshelda. Þetta tryggir örugga geymslu á vatni og kemur í veg fyrir leka, á sama tíma og efnið þolir bæði efnaálag og UV-geislun. Tankarnir og dúkarnir eru sérsniðnir að hverju verkefni og henta sérstaklega vel í fiskeldi, þar sem stöðugt og hreint vatnsumhverfi er nauðsynlegt. Slétt yfirborð gerir þrif einföld og dregur úr uppsöfnun óhreininda. Helstu kostir: Dúkur (liner) sem þéttir bárujárnstanka fullkomlega Hentar fyrir fiskeldi, RAS kerfi og stórar vatnseiningar Sérsniðnar stærðir og lausnir Endingargott efni með lágu viðhaldi DL Plastics býður upp á trausta og hagkvæma lausn fyrir þá sem vilja byggja upp stór og áreiðanleg vatnskerfi með langan líftíma.

Mykjutankar
Ef þörf er á bættri geymslu og mykjulónin heilla ekki þá erum við með mykjutanka líka. Stærðir í boði frá 500m3 og upp í 4000m3 Hægt að fara út eða beint upp. Galvaniseraðir og coataðir tankar með dúk að innan. Hagkvæm hauggeymsla!

Mykjulón
Hauggeymsla búa er jafn mikilvæg og gripirnir á búinu! Hér er hagkvæm lausn sem allir ættu að skoða ef verið er að keyra skít alla daga ársins. Stærðir frá 500m3 og upp í 10.000m3 Hægt að fá 1M djúp og niður í 5M djúp lón Auðvelt í uppsetningu, dúkurinn kemur forsoðinn og þarf bara að draga hann út þegar holan er tilbúin. Þarf að passa að lónið sitji 50cm fyrir ofan grunnvatnsstöðu. 15 ára ábyrgð er á dúknum frá framleiðanda