
Sáðvörur
Vörur

Sykurrófur
Sykurrófur eru framtíð fóðuröflunar á Íslandi Sérlega mikil uppskera per hektara Lystugt og orkuríkt fóður sem hentar sérlega vel fyrir nautgripi. Vertu með í fremstu línu fóðuröflunar á landinu og ræktaðu rófur í gripina þína!

Byggfræ 2026
Byggfræin sem við bjóðum upp á koma frá frumframleiðandanum í Noregi Graminor er leiðandi í þróun á byggfræjum í Evrópu og koma mörg af fremstu yrkjum sem við sjáum í ræktun í dag á einn eða annan veg frá Graminor. Eco-Garden er eini söluaðilinn af Sverre og Torgeir byggfræjum á Íslandi

Sáðvörur 26
Hér má sjá sáðvörulistann fyrir árið 2026 Á honum erum við með breiða flóru af sáðvörum frá eftirfarandi: DLF Denmark DLF Kanada

Einær fóðurlúpína
2025 var ráðist í tilraunastarfsemi með framsýnum Sunnlenskum bændum og var séð hvort einær fóðurlúpína myndi spretta hérlendis. Það gekk vonum framar má segja og höfum við ákveðið að bjóða upp á hana aftur í ár. Ráðlagt sáðmagn er 200kg á hektarann með öðrum fræjum, við mælum með að sá byggi eða hveiti saman við.