
Vélar og Tæki
Vörur

Kornsugur og Valsar
Nipere Oy er finnskur framleiðandi með áratuga reynslu í þróun búnaðar fyrir fóðurvinnslu og meðhöndlun hráefna á búum. Fyrirtækið var stofnað árið 1976 og sérhæfir sig í lausnum sem auka hagkvæmni og sjálfstæði bænda í fóðrun og vinnslu Vörurnar eru seldar undir Rivakka vörumerkinu og mynda heildarkerfi sem nær yfir allt ferlið – frá mölun og blöndun til geymslu og flutnings á fóðri Heildarlausn fyrir fóðurvinnslu Nipere býður upp á breitt úrval búnaðar fyrir nútíma búrekstur, þar á meðal: Valtaramyllur fyrir kornvinnslu Blöndunarkerfi og batch mixera fyrir jafna fóðurblöndu Síló og geymslulausnir fyrir hráefni og tilbúið fóður Flutningskerfi eins og blásara og færibönd Kerfin eru hönnuð til að vinna saman sem ein heild, sem gerir bændum kleift að framleiða sitt eigið fóður á hagkvæman og stjórnanlegan hátt Fyrir hverja er Nipere? Lausnir frá Nipere henta sérstaklega vel fyrir: nautgripabú svínabú alifuglarækt blandaðan landbúnað Markmiðið er að auka sjálfstæði bænda, lækka fóðurkostnað og bæta gæði fóðurs. Af hverju velja Nipere? Heildarkerfi fyrir fóðurvinnslu á búum Sterk og endingargóð tæki fyrir krefjandi notkun Hentar bæði smærri og stærri búum Áratuga reynsla og þróun í landbúnaðarbúnaði Nipere (Rivakka) er því traust lausn fyrir bændur sem vilja ná meiri stjórn á fóðrun, bæta rekstrarhagkvæmni og hámarka árangur í búrekstri.

Ísáningsvélar
Ísáningsvélar frá Unia eru áreiðanlegar og öflugar lausnir fyrir nákvæma og jafna sáningu. Þær eru hannaðar til að skila hámarks afköstum við mismunandi aðstæður, með einfaldri stillingu og endingargóðri smíði sem tryggir langan líftíma. Með Ísáningsvélum frá Unia færðu betri nýtingu á fræi og jarðvegi – fyrir öflugri uppskeru og meiri hagkvæmni. Bjóðum upp á 3 og 6 M breiðar

Heilfóðurblandarar
Atelier Robert eru heilfóðurblandarar í sérflokki! Fjölskyldufyrirtæki í Belgíu sem sérsmíðar blandara eftir þínum þörfum. Hægt að fá drifskaptsdrifna aftan í dráttavél eða rafdrifna staðbundna Einnig í boði að fá minni blandara framan á dráttavél eða liðlétting

Sykurrófuupptökuvélar
Ætlar þú að rækta sykurrófur og vantar upptökuvél? Við erum með sérhæfðar vélar fyrir sykurrófuupptökuvélar frá Dewulf Margar útfærslur í boði

Hálmblásarar
Atelier Robert hálmblásararnir þeirra eru grunnur fyrirtækisins og er mjög breitt úrval í boði af blásurum bæði framan á liðléttinga/dráttavél eða stærri týpur sem eru dregnar. Skoðaðu hálmblásaralistann hér fyrir neðan og kíktu á úrvalið!

Wassebauer
Eitt flottasta heilfóðurkerfi á markaðnum í dag, nú loks í boði á Íslandi! Austurrísk gæði sem eiga sér fáa líka. Sérsniðin hönnun fyrir hvert fjós Hentar sérlega vel fyrir rúllur Kerfi sem sæmir sér vel við Íslenskar aðstæður

Plastpressur
Rafdrifnar og Glussadrifnar Pressa í 50-75kg bagga Auðveldar í notkun Sparar mjög mikið pláss þegar kemur að ruslageymslu Glussadrifna pressan tengist við dráttavél eða liðlétting og má standa úti!

Gjafaskóflur
LWC Gjafaskóflurnar okkar henta sérlega vel til að gefa bygg, hrat, sykurrófur eða annan fóðurbæti yfir heyið án þess að þurfa að nota handafl. Kemur með þeim tengjum sem passar á þinn liðlétting!